Götuhreinsun
Götuhreinsun
12. maí 2026
Götuhreinsun hefst í dag, þriðjudaginn 12.maí og verður í gangi næstu daga.
Við biðlum til íbúa að leggja ekki bílum sínum eða öðrum tækjum úti á götu þegar verið er að sópa til að tryggja að verkið takist sem best.
Sett verða upp skilti við enda þeirra gatna/hverfa sem á að hreinsa deginum áður en hreinsað verður. Þetta er nýtt fyrirkomulag sem við vonumst til að heppnist vel.
Skipulags- og umhverfissvið.